Fréttir
- 12. maà kl. 09.48
Guðmundur Arason ehf 40 ára
Í dag 12.maí 2010 eru fjörtíu ár frá stofnun Guðmundar Arasonar ehf og verður viðskiptavinum fyrirtækissins boðið upp á kaffi og köku í tilefni dagsins.
Guðmundur Arason stofnaði fyrirtækið árið 1970, en Guðmundur var lærður járnsmiður og hafði átt og rekið Borgarsmiðjuna frá árinu 1960. Hann byrjaði að flytja inn járn og stál til nota í eigin rekstur, en fljótlega fóru menn að leita til hans vegna efniskaupa. Innflutningurinn varð sífellt stærri hluti rekstrarins, uns Guðmundur hætti með vélsmiðjuna og snéri sér eingöngu að innflutningi og sölu járns og stáls.
til baka

